Málrækt

Persónuvernd

Málrækt · Síðast uppfært í ágúst 2026

Stutta svarið: Málrækt safnar engum persónuupplýsingum. Það er engin innskráning, engar auglýsingar og engar mælingar. Framvindan þín er geymd í vafranum þínum og fer aldrei þaðan.

Málrækt rekur vefinn malraekt.is. Hér að neðan er útlistað hvað er geymt, hvar það er geymt og hvað þú getur gert í því.

Engir reikningar

Þú þarft ekki að skrá þig til að spila. Það er engin innskráning, ekkert lykilorð og við biðjum þig ekki um netfang, nafn eða neinar aðrar upplýsingar um þig.

Það sem leikurinn geymir

Framvindan þín er geymd í vafranum þínum sjálfum, í geymslusvæði sem kallast localStorage. Þar liggur:

Þessi gögn fara aldrei af tækinu þínu. Þau berast okkur ekki, og við höfum enga leið til að sjá þau.

Þetta hefur eina hliðarverkun sem er rétt að nefna: af því gögnin fylgja tækinu en ekki þér byrjar þú upp á nýtt ef þú skiptir um vafra eða tölvu.

Vafrakökur

Við notum engar vafrakökur. localStorage er ekki vafrakaka og fylgir ekki með beiðnum á þjóninn. Það er notað eingöngu til að muna þinn eigin leik og krefst því ekki samþykkis.

Mælingar og auglýsingar

Engar. Það eru engin greiningartól á síðunni, enginn Google Analytics, engar auglýsingar og engir rekjarar frá þriðja aðila.

Hýsing

Síðan er hýst hjá Netlify (Netlify, Inc., Bandaríkjunum). Eins og allir vefþjónar heldur þjónninn tæknilega skrá yfir beiðnir — meðal annars IP-tölu, tímasetningu og hvaða skrá var sótt. Þetta er nauðsynlegt til að afhenda síðuna og verjast árásum. Við notum þessar skrár ekki til að bera kennsl á einstaklinga og tengjum þær ekki við neitt annað.

Af því Netlify er bandarískt fyrirtæki fer umferð um netþjóna utan EES. Þetta á aðeins við um tæknilegar aðgangsskrár — engin gögn um þig eru send þangað, því þau verða aldrei til.

Réttindi þín

Af því gögnin liggja í þínu eigin tæki þarftu ekki að biðja okkur um leyfi til að skoða þau eða eyða þeim — þú ræður þeim sjálfur og getur eytt þeim hvenær sem er. Sjá Eyðing gagna.

Börn

Leikurinn er ætlaður öllum aldurshópum og safnar engum persónuupplýsingum, hvorki frá börnum né fullorðnum.

Breytingar á þessari stefnu

Þessi stefna lýsir Málrækt eins og hún er í dag. Ef við bætum síðar við notendareikningum, mælingum eða auglýsingum breytist myndin verulega — þá verður þessari síðu breytt áður en það gerist og dagsetningin efst uppfærð.

Hafðu samband

Spurningar um þessa stefnu má senda á gizurlab@gmail.com.

← Til baka í leikinn