Eyðing gagna
Málrækt · Síðast uppfært í ágúst 2026
Málrækt geymir engin gögn um þig á þjóni. Það er því ekkert hjá okkur til að eyða — og þú þarft hvorki að senda beiðni né bíða eftir svari. Þú eyðir gögnunum sjálfur á nokkrum sekúndum.
Hvað er geymt
Aðeins þetta, og aðeins í vafranum í tækinu þínu:
- hvaða orð þú hefur leyst og á hvaða vísbendingu
- stig, dagaröð og tölfræði
- þemavalið þitt
Þar er ekkert nafn, ekkert netfang og ekkert sem bendir á þig.
Hvernig þú eyðir því
Hreinsaðu vefgögn fyrir malraekt.is í vafranum þínum. Leiðin er þessi:
- Chrome og Edge: Stillingar → Persónuvernd og öryggi → Vafragögn og önnur gögn → Skoða öll gögn síðna → leitaðu að malraekt.is
- Safari: Stillingar → Persónuvernd → Hafa umsjón með vefgögnum → leitaðu að malraekt.is
- Firefox: Stillingar → Persónuvernd og öryggi → Vefkökur og gögn síðna → Hafa umsjón með gögnum
Um leið og þú gerir þetta er allt horfið. Leikurinn byrjar þá upp á nýtt næst þegar þú opnar hann, og röðin þín núllast.
Ef þú vilt halda röðinni en losna við annað
Það er ekki hægt. Allt liggur á sama stað og eyðist í einu lagi.
Ef þetta breytist
Ef við bætum síðar við notendareikningum munum við geyma netfang og framvindu á þjóni. Þá bætist hér við leið til að biðja um eyðingu, ásamt fresti sem við bindum okkur við. Þessi síða verður uppfærð áður en nokkuð slíkt fer í loftið.
Spurningar
Sendu á gizurlab@gmail.com.
← Til baka í leikinn